Ódýrar bækur

Heim á ódýrari bækur
Bókalisti HA
Tilkynning frá Eymundsson


Fréttabréf Bókavefsins
Fáðu tilboð og fréttir frá okkur.
Nafn:
Netfang:

Háskólar á Íslandi

Háskóli Íslands
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Hólum
Kennaraháskóli Íslands
Landbúnaðarháskóli Íslands
Listaháskóli Íslands

Gleðilegt ár

Háskólabækur á hagstæðu verði


Tilkynning vegna breyttra aðstæðna

Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu hefur bókaverslunin Eymundsson sent frá sér tilkynningu um stöðu bókakaupa fyrir komandi vormisseri. Þar kemur fram að bækur muni hækka mjög mikið í verði og þar er einnig gefið í skyn að erfitt verði að útvega allar bækur í tíma fyrir upphaf kennslu.
Því er nú brýnna en áður að nemendur taki til sinna ráða.

Greinin í heild sinni er hér.


Kæru nemendur og kennarar.

Ég hef stundað háskólanám í nokkur ár og stærsti kostnaðarliðurinn hafa verið bækur sem ég hef þurft til námsins. Árið 2007 fór ég að leita að ódýrari skólabókum og nú er svo komið að ég kaupi allar mínar bækur beint frá erlendum bókaverslunum.

Ég hef fundið nokkrar bókaverslanir sem geta afgreitt til Íslands bækur á mun betra verði en er í boði hérlendis. Þessi vefur hefur verið að þróast samhliða mínu námi og bókaverslunum hefur smám saman fjölgað.

Ég tek fram að ég mæli aðeins með verslunum sem ég hef skipt við sjálfur og sem ég veit að veita góða þjónustu og vöruúrval. Sem dæmi pantaði ég bók þann 21. des 08 og fékk hana á 10 dögum frá Bandaríkjunum heim að dyrum. Bókin kostaði kr. 5.095 með sendingarkostnaði, en kostaði um 8.400.- hérlendis í haust fyrir síðustu gengisáföll.

Tenglar þessara bókaverslana eru hér til hægri.

Ef þið getið bent á aðrar hagstæðar bókaverslanir þá endilega sendið mér póst eða fyrirspurn hér. Einnig væri gaman að fá bókalista fyrir fleiri skóla.

Icelandic English

Smelltu á tengil hér fyrir neðan til að leita að bókum







Vefhönnun Hugverk.com l Allur réttur áskilinn © 2008 - 2009