Heim á ódýrari bækur
Háskólar á Íslandi Háskóli Íslands |
Tilkynning frá starfsfólki Eymundsson vegna námsbóka fyrir vormisseri Góðan dag Vegna þeirrar þróunar sem hefur orðið á Íslandi að undanförnu finnst okkur nauðsynlegt að gera grein fyrir þeim aðstæðum sem við erum að horfa fram á, svo hægt sé að bregðast við þeim og undirbúa sig fyrir þær. Það ástand sem hefur myndast er búið að lama innflutning að verulegu leyti og er innflutningur á háskólabókum þar ekki undanskilinn. Annað mál sem tengist þessu er verð bókanna. Eins og allar innfluttar vörur eiga bækurnar eftir að hækka mikið. Við reiknum með að hækkunin nemi að lágmarki 30-40%. Það er mikil hækkun á vörum sem ekki voru ódýrar fyrir. Það er því við því að búast að bóksala eigi eftir að dragast saman. Þó mætti gjarnan horfa til þess að við eigum stóran lager og oft hittist svo á að við eigum eldri útgáfur af einhverjum titlum. Svona lítur þetta út frá okkar bæjardyrum og það er öruggt að fullyrða að upphaf næstu annar verður í hæsta máta undarlegt. En þangað til að við vitum meira getum við lítið annað gert en að vona það besta. Við vitum að það er erfið aðstaða fyrir kennara að nemendur séu ekki komnir með námsefnið þegar kennsla hefst, en í ljósi þessara óvenjulegu aðstæðna vonumst við til þess að hægt verði að sýna því skilning og þolinmæði. Við látum svo skrifustofustjórana vita um leið og einhver tíðindi berast. Kveðjur |
![]() Smelltu á tengil hér fyrir neðan til að leita að bókum |